Brostu það kostar ekki neitt ! :)

31.10.2006 10:05:10 / Steffy

Sumar"slútt" hjá Avis

ója for á þetta ALLSVAÐALEGA vinnufylleri á laugardaginn...og gvuð minn almáttur hvað það var gaman. Hættum að vinna kl.3 og fyrsti og annar og þriðji bjórinn var opnaður. leiðinni var haldið í paintball, og djöfull var gaman þar. Algjör snilld :)    Eftir paintballið forum við svo til keflavíkur í nyja húsnæðið, þar var boðið uppá snittur og annað fineri og að sjálfsögðu var allt heimsins áfengi þar..og það var sko hellt í sig :)            leiðin lá svo niðri miðbæ reykjavíkur.....

þetta er án efa skemmtilegasta vinnupartý sem uppi hefur verið

eeen svo þurfti ég að mæta í vinnuna kl 8 um morgunin..og jakk það var viðbjóður :/ hehe

Hér getiði skoðað myndir :)

http://hrakfallabalkur.bloggar.is/album/21322


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 16:18:49 / P.Hilton

brostu

BROSTU það kostar ekki neitt

BROSTU út í annað út í eitt

BROSTU BROSTU BROSTU

ÞAÐ KOSTAR EKKI NEITT!!!

Matarbookt017.jpg

ef ég er ekki búin að vera með þetta á heilanum í allan dag þá veit ég ekki hvað, takk fyrir gærkvöldið skvísurnar mínar:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 11:23:31 / Rusinan

Love is in the air....

u sinni var ung Stúlka sem keypti sér bíl, bíllinn varð hennar eini og besti vinur. Þó svo ást og traust var mikið þá áttu þau sína vondu daga. Þau lentu í sínum fyrsta árekstri saman, fyrsta hrekkjusvíni og við gærum haldið endalaust áfram. En svo varð hann veikur hann varð mjög veikur....

En......

Undur og stórmerki hafa átt sér stað, eftir 5 mánaða erfiðan aðnskilnað. Ég er klökk hérna bara að hugsa um þetta... Ég Booob, Jennifer og Steeven, vorum sameinuð á ný í gær. Trúi þessu bara ekki. Þvílíkir fagnaðarfundir. Steven meira að segja í góðu formi eftir hvíldina.

Þó hann sé nú oft stífur, kaldur, hávaðasamur og ,,örlítið" fatlaður og ófríður þá er hann sá eini rétti fyrir mig, :)Nú er ekkert nema vöðvastýri, fallegir upphandleggsvöðvar:):) og strætólausar ferðir:)'

2006541.jpg Ragnhildur og Booob á góðum degi;)

Mygluð táfýla kveður:)


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 12:13:33 / whiterspoon

Reykjavík er ekki það örugg

Svo að alllir vita þá er ég, Stefania, að blogga, en ekki sara...að einhverjum ömurlega ástæðum þá get ég ekki loggað mig inná síðustjórn...og það er geðveikt pirrandi. Eruði stelpurnar búnar að henda mér út eða :)

Allavega... Ég vildi bara koma því fram, eins og fyrirsögn segir að Reykjavík er ekki jafn örugg og allir vilja halda fram. !!!

Nú hafi komið upp 2 ný nauðgunarmál. sem eru víst mjög svipuð. Stelpur á leiðinni heim úr bænum hafa verið dregnar í húsasund og þeim nauðgað af 2 mönnum. Þetta er hræðilegt. Ekki bara gagnvart fornalömbum, heldur sviptir þetta öllum stelpum frelsi. Frelsi á að geta labbað einar heim. Einhvað sem hefur alltaf verið frekar sjálfsagður hlutur.

Ég byð ykkur að fara varlega, og labba ekki einar heim að nóttu til.

Strákar...fylgiði stelpunum heim.....


» 17 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 14:22:36 / reid

einmitt

26 nóvember 1996

Ég held að Tómas sé skotin í mér því að Ása sagði Önnu það og Anna sagði mér það.  Ég reyni að sjá hvort að hann sé skotin i mér. Einu sinni var ég skotin í honum en núna finnst mér hann ekkert sætur.  Núna er ég skotin í Halldóri. Sunna og Sara bekkjarsystur mínar eru líka skotnar í honum.

27 Júlí 1996

Núna er ég langmest skotin í Atla.  Einu sinni vorum við í fótbolta með Sunnu,Fríðu og Unni Heiðu. Þær voru saman í liði en ég var með Atla,Jakob og einum litlum. Hann gaf alltaf á mig.  Ég vildi ekki vera með stelpunum í liði. Bara Atla. Hann er sætur og heimskur?

1997

Ég heiti Eva. Ég er skotin í Halldóri.  Mér finnst hann svo sætur að ég gæti spurt hann hvort´hann vildi koma með mér í bíó  (vá eva) Ég hef einu sinni komið til hans með mömmu og við lékum okkur saman. Hér ætla ég að búa til ástarljóð.................

ég elska þig svo heitt að við aldrei þurfum að hittast neitt. Fórum í bíó og hlustum á ríó,á hvað ég elska þig heitt;0)

Eva sem hefur ekkert að segja:haha::haha:


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 14:05:43 / sunshine

long time no blogg ....

Jæja ....

Er ekki kominn tími á smá blogg frá mér, er ekki búin að blogga í áraraðir, allavega mjög lengi ...

Anywho ... margt er búið að gerast í mínu lífi að undanförnu og má þar nefna sem dæmi að ég flutti suður og er komin með íbúð með Kela litla í Hafnarfirði, svo er ég komin í vinnu í landsbankanum á Bæjarhrauni eftir stutt stopp í Bakaríinu hjá henni Guðdísi ( good times) ...  :D þannig að ég er bara að vinna af mér rassgatið þessa dagana , bæði sem gjalkeri og svo er ég að vinna í söluverinu 2 kvöld í viku ...

Hrafnkell er að selja herbalife á fullu og bað mig um að vera með sér í því en til þess þurfum við sjálf að vera á því, mér fannst nú soldið asnalegt fyrst að fara að byrja á herbalife en svo er þetta bara algjör snilld... eftir að ég var að vinna í bakaríinu var ég alltaf að drepast i bakinu og búin að eyða um 30-40 þús kalli í hnykkjara og rugl .. 8| nú eru bakverkirnir alveg farnir og ég er bara eitthvað svo hress .. sem er bara sniðugt og ekki spillir fyrir að dragtarbuxurnar mínar og gallabuxurnar eru orðnar þó nokkuð lausar á manni ... en anyway , mæli með þessu ... :haha:

Einnig er ég byrjuð í súludansinum ásamt foxies og verð ég bara að segja að þetta er ekkert smá skemmtilegt ... mætum tvisvar i viku í magadanshúsið og dillum okkur og sveiflum okkur á súlum, brjálað skemmtileg líkamsrækt ...

Ég veit ekki alveg afhverju ég er svona léleg að blogga en svona er bara lífið, ég hringi alltaf bara í staðinn ;) nú er árshátíð landsbankans næstu helgi og eg veit ekkert í hvaða kjól ég á að vera .. hmm brjálaðar áhyggjur þarna á ferð ..

 

á ég að vera í þessum rauða ?

eg að já..... brosa

 

 

 

 

 

 

 

 

 

eða þessum bleika ?



eða svarta sem ég var í í afmælinu mínu ... er ekki enn með mynd af honum  ??

 

Annars gengur lífið bara sinn vanagang , vakna, fá sér herbalifesjeik, mæta í vinnu, koma heim , heyra í fólki, elda mat, taka til , þvo þvott, djamma um helgar , lesa bók upp í rúmi og já bara reyna að hafa gaman að því að það er ekkert skelfilegt búið að gerast í tvo-þrjá mánuði, ég er bara hissa, en vonandi er fortíðin með sínar fjölmörgu niðursveiflur að baki og ný og björt framtíð tekin við ... gæti maður verið háfleigari .. hmmm ... J  J

Lifið heil   :haha: :haha: :haha:

Kveðja Little Miss Sunshine J 


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 00:23:54 / P.Hilton

þekkiru mig?

1.Hvað kallaru mig?
2.Hefuru heyrt mig syngja? Ef svo er hvernig hljómaði ég?
3.Hvað á ég eftir að vera að gera á tíbísku laugardagskvöldi eftir 2 ár?
4.Þegar þú hugsar um mig, hvaða 2 lög dettur þér fyrst í hug?
5.Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhversstaðar, myndiru halda að ég væri á föstu eða á lausu?
6.Þegar þú hugsar til mín, hvaða 5 hlutir dettur þér fyrst í hug?
7.Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
8.Hvernig stelpa er ég og hvernig týpu flokkaru mig?
9.Hvað erum við mörg í fjölskyldunni?
10.Hefuru öfundað mig? Hvers vegna?
11.Hver er uppáhalds sönkona/söngvari minn?
12.Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
13.Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
14.Hvað giskaru á að ég verði gömul þegar ég eignast barn?
15.Hversu vel teluru þig þekkja mig?
16.Hvernig stráka fíla ég?
17.Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
18.Hvað er mest einkennandi við mig?
19.Hvaða búðir elska ég að fara í?

HAHA svarið nú þessu dúlluranar mínar:)

Ragnheiður


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 21:00:47 / P.Hilton

stop it now!!!

STELPUR!

ég verð bráðum sjóveik og litblind af þessum litatilfærslum!!!

hættiði þessu!!!!!!!!

Ragnheiður


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 12:56:35 / Rusinan

Styrktarsjóður fátæksnámsmanns ehf.

Einhverstaðar heyrði ég sagt að ef að væru engir slæmir dagar, myndum við ekki njóta þeirra góðu. Ekki frá því að það sé e-h til í því!!

En hey nú hef ég að fordæmi Ragnheiðar hafið flöskusöfnun, já erum búnar að þjóta bæjahlutana á milli í leit að tómum plast, ál og glerflöskum. OG hefur það gengið eins og í sögu, og nú er komið að ykkur að hjálpa til. Þannig er mál með vexti númerplötunum mínum var stolið (þið sem fylgist vel með ættuð að vita það nú þegar;)) og ég er bara fátækur námsmaður sem á ekki bót fyrir boruna á mér og get því ekki keypt nýjar. Og auðvitað er það ekki í boði að gefast upp!! ég er búin að hringja austur og vestur í allan morgun og þarf að láta hina og þessa stofnun vita til að geta fengið nýjar og auðvitað taka þær allar gjald fyrir sína þjónustu (rétt eins og ég:):):):)) Svo þetta er orðið helvíti dýrt!!

Svo ef þið lumið á tómum flöskum í geymsunni hjá ykkur, klinkbuddu sem þið hafið ekki hreyft við í fjölda ára skal ég með glöðu geði losa ykkur við þetta án alls gjalds:):) kostaboð!!

Segið svo að ekkert sé að gerast í mínu lífi!! ha??:) gæti skrifað bók!!! Eins og þetta var skemmtilegt fyrsta mánuðinn er þetta að verða ,,svolítið" þreytt svona eftir 3 1/2 ár.... svo hér með lýsi ég yfir friði af minni hálfu!!

Lifið heil og vona að þú getir notið númerin mín í e-h gagnlegt!!:)

Ragnhildur

Og elsku þið vinkonur hvar væri ég án ykkar!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 11:37:38 / Rusinan

Mánudagsmæða og alltof mikill tími til að hugsa.

Þá er það enn eitt jæja-ð.

Mánudagurinn mættur í allri sinni dýrð, enn ein helgin þotin framhjá eins og hvert annað 463 hestafla rafmagnshlaupahjól.

og viti menn ekkert hefur breyst:) ég er ennþá sama Ragnhildurin með sömu markmið, gildi, tóma peningaveski, skólabækur í stöflum, bíllaus, týndar númeraplötur úr gulli (hver í andskotanum stelur númeraplötum?? halló þú þarna, hefuru barasta EKKERT að GERA) ég náttla samt skil þetta uppað vissu marki, merkilega manneskja, ég;)

Lýsi því hér með númeraplötum með nr YO 537 ef einhver sér þér vinsamlegast látið vita, eins og mér finnst þetta skemmtilegur leikur ,,fela hlut" þá gefst ég upp!!

Og ef ÞÚ sem ert að lesa þetta núna hefur þessar dýrmætu gullplötum í fórum þér þá bara skila þeim á staðin þar sem þú tókst þær, ég skal meira að segja skrúfa þær aftur á:) ætla ekki að leggja þá vinnu á þig aftur, hver sem þú ert!!

Langar líka að vita hvað fór í gegnum huga þér þar sem þú sast þarna ein/n og hamaðist við að ná plötunum af þessari járnhrúgu áður en nokkur myndi sjá þig? Kannski þú bara leyfir litlum miða að liggja með plötunum með svari??;) Hlakka til að sjá. og já höfum þetta bara nafnlaust mér er alveg sama hver þú ert, og skil náttla vel að þú elsku engill viljir ekki láta nafn þíns getið, því trúðu mér ef ég væri jafn sorgleg/ur og þú myndi ég ekki segja. Bara ef ég fæ þær aftur.

Nei þetta er ekki djók!!

En Ragnhildur kveður í bili.

Okt06012.jpg  Það er ljótt að stela!!! löggumann kemur og tekur þig......

over and out

Fróðleiksmoli dagsins:                                                                                                                  Augasteininn stækkar ef þú hefur kynferðislegan áhuga á einhverju/m. Allir að horfa á augasteinana:)


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 17:13:15 / whiterspoon

????????

Getiði sagt mér afhverju ég er svona??8|


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 11:31:47 / Aniston

Hrauneyjar.....Rónaeyjar

Laugardagur:  Strákarnir (Águst, Kópur og Jónas) orðnir vel pirraðir á að bíða eftir mér, Sunnu og söru. Við áttum að hitta þá á shell á suðurlandsbraut einhvað um eitt...við vorum of seinar hehe... deildum okkur í bíla og sóttum Evu skvísu. Leiðin lá austur. Tekin var smá Jeppa krókleið, til að sjá Stöng... Vitiði að ég bara vissi ekki að ísland væri svona fallegt land :/  Stoppuðum svo í Hrauneyjum þar sem að við vorum búin að panta nokkur herbergi, þar hentum við öllu dótinu inn og bjuggum til pláss fyrir 7 í hinum víðsfræga Land Rover sem hann jónas á. Fyrsti bjórinn var opnaður....förinni var heitið í landmannalaugar. Jónas tok Craaazy driverinn a´þetta og við keyrðum þannig séð ekki þangað heldur flugum. Við erum að tala um að ölið flaug um allt og greyið hann kópur fékk líklegast um 1 liter af bjór yfir sig..allt henni söru okkar að þakka ;) bara stuð ;)  slökuðum svo á í fallegri nátturu....oohhh niiicce...ég mæli eindregið með þessum stað :) !! svo hentumst við aftur í fötin og "flugum til baka" til Hrauneyja. þar var meiri bjór tekin upp. Förum í þetta líka allsvaðalega skemmtilega drykkjuspil....ég veit ekki alveg hvernig ég að lýsa þessu kvöldi...en eitt veit ég.....það var alveg geðveikt gaman :) Jónas for að kostum að vanda og mikið var hlegið.... Hún Ragnheiður okkar var greinilega í sama pakka og við þegar að kemur að súlunni sem var á miðju golfinu :D hehe þetta var alveg geggjað.... Ragnhildur...Ragnheiður þið hefðuð átt að vera þarna....

Vitiði ég bara veit ekki hvað ég að segja meira....

Takk þið hin fyrir ógleymanlega helgi :)

Svo í vetur þá förum við allar foxies til landmannalauga...á vélsleðum :)

Kv.Stefanía Gunnarsdóttir a.k.a Steffý


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.10.2006 12:49:27 / P.Hilton

vísó

Stelpan fór í vísindaferð á föstudaginn og er svona að reyna að jafna sig. Kvöldið einkenndist af fáránlegum smsum, klósettpappír, jagemaster, hvítvín, tópas, bjór, ice og ópal.... súludans á ljósastaurum og guðrúnardóttir.

útkoman var nokkuð góð þrátt fyrir alveg ofboðslega ölvun!

mæli algjörlega með því aðallir kíkji á myndir kvöldsins...

http://share.shutterfly.com/action/welcome?sid=8BZs2rlu0cMiG

og meðal annras þá heiti ég núna Ragnheiður Lára Guðrúnardóttir samkvæmt þjóðskrá.... bara svo það sé allt á hreinu:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 09:52:41 / Rusinan

SEX Foxies að dansa hahahahaha

Gleðilegan Miðvikudag;)

Farin að skammast mín fyrir rassafærsluna hérna fyrir neðan, svo ég ákvað að blogga yfir hana;)

Lífið mitt gengur bara sinn vanagang (like you care;))

Takk fyrir gærkvöldið stelpur mikið ógeðslega var þetta skemmtilegt!! vona bara að ég nái að borga8|8|8|

Steffy set þig hér með í nefnd til að skipuleggja næstu helgi:):)

Held að eina í stöðunni sé að fara að selja sig... vá kann ekki að eiga enga peninga, en nóg um það hefur einhver áhuga?? hahaha

tilega015.jpg

ætla að fara að læra um sjálfstæðisbaráttu Íslands, eins og öll hin skólaárin mín.... það sem fólk getur blaðrað um þetta;);)

-Ragnhildur sem hefur ekkert að segja;)

--------------------------------------------------------------

ég ætla að gerast það furðuleg og bæta við bloggið hennar Ragnhildar :)  mér fannst nú vanta um það hvað við gerðum í gær :)

Núna erum við semsagt, SEX foxies, byrjaðar að æfa púl dans hjá henni systir minni...þeir sem ekki vita þá er púldans, súludans :) nema að við fækkum ekki fötum :) og það var ógeðslega gaman :) Núna mætum við 2 í viku allar saman að flippa á súlu :)

sla.jpg

VIÐ ERUM SEX!!!;) hahahaha


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 12:48:28 / Rusinan

átti ég bara ekkert að fæðast eða

Nei vitiði hvað núna er ég hætt að hlæja......

Óheppnari manneskju er ekki hægt að finna á landinu, heiminum, þessvegna í þessu sólkerfi!!!

Var uppá leikskóla í gær, heilsa uppá líðið. Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta svona gamalt timburhús á 3 hæðum, gamlat = litlir mjóir og brattir stigar!! Haldiði ekki að kella hafi flogið niður eins og eina hæð í gær?? Við erum að tala um frá EFSTU tröppu og endaði á veggnum fyrir neðan neineien ég var ekkert að renna niður ég flaug skaust á vegginn og aftur til baka á tröppurnar. Í alvöru að ég skuli bara ekki hafa hálsbrotnað, það er mesta mildi. Þvílík læti svo allir komu hlaupandi, krakkarnir skíthræddir og tóku utnan um mig og ég lá bara þarna. Fann svo til í rassinum að ég gat ekki hugsað mér að standa upp. Reyndar vissi ég frá byrjun að ég hefði ekki brotnað svo mér leið strax betur. Kellurnar ætluðu að senda mig beint uppá spítala því þær héldu að ég hefði fengið heilahristing, já leiksskólastjórinn horfði á eftir mér niður. hahah og ég heyrði bara öskrin í henni á meðan ég var þarna í lausu lofti:)

en jæja hélt að þetta myndi bara lagast, var mest svekkt yfir því að komast ekki í ræktina var á leiðinni þangað. Svolítið marinn á annarri rasskinninni og sú hin sama aðeins útstæðari vegna bólgu:) Fór í vinnuna í gærkvöldi og hélt að allt væri í góðu (var náttla sjúúúúúklega illt í rassinum og gat ekki setið).

Vaknaði svo í nótt með svo rosalega verki að mig langaði bara að vekja mömmu og fara að hágráta. Með riiiisa svartan margblett á hægri rasskinn og og verki öllum hægri hluta líkamans ,,strengi" eins og ég hafi gert 500 magaæfingar í gær og verki í halsi og baki eins og 10 trukkar hafi keyrt aftan á mig, bullandi hausverk!! lítið sofið þessa nótt.

Svo hér ,,sit" ég heima og úða í mig íbúfeni eins og ég sé á prósentum við það.

Vona að þið eigið betri dag en ég, allar samúðarkveðjur veeeeel þegnar því Ragnhildur litla á svoooo bágt núna:( :cry:

En ég lagast!!;) fannst ég bara verða að deila þessu með einhverjum!!:)

Ætla að fara að læra, með nagandi samviskubit að vera ekki í skólanum

Ragnhildur


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
justin timberlake - summer love
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
CoStA dEl SoL bEiBí
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1674 dögum
Myndasöfn
LiTlU kRíLiN
mikilvæga liðið :)